Ég fann allt gullið
An Eagle On Your Mind by ~moejo
Sköpunargáfan virðist vera komin aftur. Hef gert lítið annað þessa dagana en að skrifa. Er farin með ljóðabókina í aðeins aðra stefnu, en ég er virkilega spenntur yfir þessu. Þetta verður meira svona fjöl-lista thing, er að sameina ljóð, ljósmyndun og bókmenntir. Kemur allt í ljós! Ef ég held áfram á þessum hraða verður ekki langt þangað til að ég get farið að sýna þetta.Var búin að steingleyma að blogga. Hef eiginlega ekki nennt því. En svo koma svona dagar þar sem maður þarf greinilega að seigja eitthvað við heiminn.
Ætli þetta tengist því ekki að ég á að vera læra en er að finna afsakanir til að sleppa því.
augun geta ei meir.
Hitt hef ég marga í sömu sporum
Ekki fleir, get ei meir.
Ég hef gengið í alla nótt
í þeirri veiku von
að við sofnum í nótt.
Útbúið hef ég lítinn stað
lítið athvarf, til að flýja á.
Hverfa burt frá þessum stað
og vonandi sofna.
Vakni sem nýr, glænýr ég.
Úthvíldur, loksins loksins
Tilbúin til að gera allt upp á nýtt.
Til að gera allt upp á nýtt!
N/P: MGMT - Kids








