Það er fyndið hvað maður tekur ekki eftir hlutum fyrr en maður missir þá! Vá hvað ég var farin að sakna rúmsins míns, sorry krakkar ég saknaði ykkar ekkert ;) Nú er sú fluga aftur komin í hausinn á mér að flytja til útlanda. Að sjá Hildi þarna úti var inspiration. Það er allt svo frjálst og ligeglad. Nei ég efast samt um að ég gæti farið frá ykkur. En sem sagt ég er komin heim frá Roskilde. Sveittur, sólbrenndur og ógeðslegur. Ekki búin að fara í sturtu í 7 daga og lappirnar á mér þaktar blöðrum. en ég mundi ekki vilja hafa það öðrvísi! HE He ég kom heim í gær í þessu ógeðslega ástandi en náði samt að hözzla ;) En það er eitthvað sem ég ætla bara að halda fyrir sjálfan mig. En já þetta blogg á víst að vera um þessa blessuðu ferð sem gekk mjög svo skrautlega fyrir sig. Símar týndust, peningar voru eyddir og bjórinn var drukkinn. En þetta var virkilega æðisleg ferð þar sem ég kynnist nýju fólki og styrkti vináttubönd mín við gamla vini!! Það tekur dálítið á að sofa þrjú í pínulittlu tjaldi og vakna í svitabaði í 26 stiga hita, til þess eins og leggjast út að sofa. Mér finnst ótrúlegt að lotta og stúni hafi ekki apeað á mig, því let's face it ég get verið pain in the ass.
En þið sem fóruð ekki með, þið verðið því miður að höndla einkahúmor okkar í smá tíma. Eins og
Snegle!!! (Mönzh dauðans)
Typpi!! (Oftast öskrað á fulla útlendinga og sagt að þetta þýðir skál)
Slushee slurpee (Lítið yndælt lag sem skemmti mér vel í tívólínu)
Hun heder Anna (Þjóðsöngur Roskilde í ár) (Nýjasta nýtt í danstónlist)
o.s.frv.
En það er svo margt sem stóð upp úr að ég ætla ekki einu sinni að reyna að telja upp meira. Það eina sem ég seigi samt er að sjá TOOL var eins og að sjá guð!!!
Og ég náði langþráðu takmarki. ég náði að sparka í dúfu :D
peace dudes
N/P Song to the siren - Fighting with cliche demons (Frábært band sem ég kynntist á roskilde, cheack it out)