20 years
Það er rosalega skrýtin tilfinning að eldast, nú stend ég á þeim tímamótum að vera tvítugur, eða réttara sagt eftir nokkrar mínotur (Þegar þetta er skrifað) Ég hef verið til í tuttugu ár!! nú læðist alltaf þetta venjulega í mann, er ég þar sem ég vildi að ég væri þegar ég væri orðin tvítugar, feitt já. Ég á bestu vini í öllum heiminum (sem héldu all svaðalegasta afmælispartý sem sögur fara af) ég er að gera allt sem ég vil í lífinu og ég stórlega efast um að það fari eitthvað að breytast á næstunni. Ég er orðin fullorðin einstaklingur, ég má gera allt! Er ég með einhver markmið fyrir framtíðina? Humm......halda mínu striki, ég er frekar sáttur eins og hlutirnir eru. Eina markmiðið sem ég set sjálfum mér er að ég ætla að halda á fyrstu breiðskífu WMG í höndunum áður en árið 2006 er lokið. Jæja nú er stóra stundin runnin upp, ég er löglega orðin tvítugur, og ég er ekki frá því að ég hafi stækkað svolítið síðan áðan. Fyrir akkurat 20 árum, árið 1986 þá var ég að byrja að koma í heiminn, samkvæmt móður minni þá byrjuðu hríðirnar um þetta leyti og ég kom í heimin kl.22:20 árið 1986. Og heimurinn hefur ekki orðið samur síðan.
N/P:Placebo ? 20 years
p.s hvar eru til hammó smsin, Nei djók, ég er svo sáttur eftir afmælis partýið að ég er ævinlega í skuld við ykkur. Ég elska ykkur öll
N/P:Placebo ? 20 years
p.s hvar eru til hammó smsin, Nei djók, ég er svo sáttur eftir afmælis partýið að ég er ævinlega í skuld við ykkur. Ég elska ykkur öll



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home