sunnudagur, desember 24, 2006

Jólahugvekja

Þorláksmessu er að ljúkja og jólin að ganga í garð. Desember hvarf í þoku af prófum og vinnu. Munið þið dagana þegar maður var yngri, að telja dagana í jól. Nú á ég eftir að gera allt og jólin eru eftir nokkra tíma. Ótrúlegt hvað jólin eru orðin ógeðslegt fyrirbæri. Jólin 2006 eru í boði Glitnis! Ég er sérstaklega búin að taka eftir þessu í vinnuni. Fólk er stressað og pirrað, með bílinn fullan af Dolce and Gabbana tískuvöru sem kostar mánaðarlaunin mín. Til dæmis í dag. Var brjálað að gera! Hver fær sér Kentucky á þorláksmessu! Allavegana tíðkaðist það í minni fjölskyldu að borða saman og skreyta jólatréið! Nú er þetta farið í að klára versla rándýrar gjafir og fara svo á djammið. Aldrei gæti ég séð fyrir mér Aðfangadag þar sem ég væri þunnur. Þótt ég gæti hugsanlega séð það á morgun. Byrjaði sakleysislega með einum bjór með vinnufélögum eftir langan vinnudag. The rest is history!
Aftur að jólunum. Ég elska samt jólin! Er samt ekki komin í jólaskapið! það kemur vonandi á morgun!
Ég vona bara að allir sem þetta lesa muni eiga yndisleg jól í faðmi fjölskyldunnar og góðra vina!

N/P: The Beatles - And I love her

sunnudagur, desember 17, 2006

Ekki hafa hátt, jólin koma brátt



Nú er jólafýlingurinn loksins kominn. Ég kemst alltaf í jólafýlingin eftir tónleikana hjá kórnum. Jólin eru nú samt ekki að ganga vel þetta árið. Allt í fucki á KFC, minni vinna hjá mér, minni peningar. Er ekki búin að fá desember uppbót! Ég er komin með svo mikið ógeð á þessu fyrirtæki.
Er samt búin að kaupa jólagjöf fyrir mömmu. Þannig þetta er sem betur fer allt að verða betra.
Týpískur sunnudagur í gangi. Klukkan að verða níu og ég er enþá að drepast úr þynnku. Það er samt fínt að taka svona einstaka dag þegar ég heng bara heima og geri ekki neitt.
Vá hvað ég á eftir að sakna að búa hérna. Já mikið rétt. í Mars þurfum við að flytja frá vesturbraut 10a. Nenni samt ekki að vera svekkja mig á því núna. Ætla að leggjast upp í rúm og lesa draumalandið

n/p: Iron Maiden - Rainmaker