Jólahugvekja
Þorláksmessu er að ljúkja og jólin að ganga í garð. Desember hvarf í þoku af prófum og vinnu. Munið þið dagana þegar maður var yngri, að telja dagana í jól. Nú á ég eftir að gera allt og jólin eru eftir nokkra tíma. Ótrúlegt hvað jólin eru orðin ógeðslegt fyrirbæri. Jólin 2006 eru í boði Glitnis! Ég er sérstaklega búin að taka eftir þessu í vinnuni. Fólk er stressað og pirrað, með bílinn fullan af Dolce and Gabbana tískuvöru sem kostar mánaðarlaunin mín. Til dæmis í dag. Var brjálað að gera! Hver fær sér Kentucky á þorláksmessu! Allavegana tíðkaðist það í minni fjölskyldu að borða saman og skreyta jólatréið! Nú er þetta farið í að klára versla rándýrar gjafir og fara svo á djammið. Aldrei gæti ég séð fyrir mér Aðfangadag þar sem ég væri þunnur. Þótt ég gæti hugsanlega séð það á morgun. Byrjaði sakleysislega með einum bjór með vinnufélögum eftir langan vinnudag. The rest is history!
Aftur að jólunum. Ég elska samt jólin! Er samt ekki komin í jólaskapið! það kemur vonandi á morgun!
Ég vona bara að allir sem þetta lesa muni eiga yndisleg jól í faðmi fjölskyldunnar og góðra vina!
N/P: The Beatles - And I love her
Aftur að jólunum. Ég elska samt jólin! Er samt ekki komin í jólaskapið! það kemur vonandi á morgun!
Ég vona bara að allir sem þetta lesa muni eiga yndisleg jól í faðmi fjölskyldunnar og góðra vina!
N/P: The Beatles - And I love her



0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home