mánudagur, janúar 29, 2007

Tell me why i don't like mondays


Ég er bara að reyna létta líf ykkar

föstudagur, janúar 12, 2007

Eins og svo oft áður



ARG og GARG heppnin er búin að vera elta mig, fann mig og fór svo. Ég gerðist svo heppin að vinna 5500kall í dag. Jibbí En heppnin fór svo þegar ég var að komast að því að ég er ekki að fara útskrifast í vor, út af þessu helvítis skólakerfi þarf ég að vera þarna eina önn í viðbót. Damn that makes me mad. Og það versta er að seinustu önnina mína þarf ég að vera í 3 áföngum og ég má ekki breyta töflunni núna til að minnka álagið.

Elífðar stúdentin Maggi kveður

þriðjudagur, janúar 02, 2007

01/01/2007

Þetta ár gæti ekki hafað endað betur, WMG er að fara í hugsanlegt samstarf með Appart Organ Quartet fyrir afmælið hans Árna matt. En nýja árið byrjaði ekki vel. Í öllum gleðilátunum ákvað ég að hlaupa í gegnum gleðinardyr og endaði á því að mistíga mig. Ég hef ekki geta staðið í löppina síðan. Vaknaði í morgun og löppin var orðin þreföld þannig mamma náði að draga mig á slysó. Ég byrjaði þetta ár með því að tví fótbrotna og þarf kannski að fá skrúfu í löppina. Fæ að vita meira á morgun, þetta er eitthvað með að það sé vöðvi að tosa í beinið og eitthvað með að festa þau saman. Þannig fyrstu vikur þessa árs þarf ég að staulast um á hækjum og má ekki hreyfa mig í 3 daga. Það besta við þetta er að ég bý ekki í hreyfihömlunar friendly húsi. Það er fjallaklifur routinea sem ég þarf að ganga í gegnum ef ég þarf að fara á klósettið eða eitthvað annað niðri. Fann samt snjalla leið áðan að vera með bakpoka ef ég þarf að ná í eitthvað, því ekki get ég haldið á neinu þegar ég er klifra. Þetta mun allavegana styrkja efri líkamann. Mér langar rosalega að sjá sjálfan mig staulast um hérna. Ég er eins og kjáni. Ég er eins og Fatlaða löggan í Family guy.


N/P Emiliana Torrini ? The boy who giggled so sweet