þriðjudagur, janúar 02, 2007

01/01/2007

Þetta ár gæti ekki hafað endað betur, WMG er að fara í hugsanlegt samstarf með Appart Organ Quartet fyrir afmælið hans Árna matt. En nýja árið byrjaði ekki vel. Í öllum gleðilátunum ákvað ég að hlaupa í gegnum gleðinardyr og endaði á því að mistíga mig. Ég hef ekki geta staðið í löppina síðan. Vaknaði í morgun og löppin var orðin þreföld þannig mamma náði að draga mig á slysó. Ég byrjaði þetta ár með því að tví fótbrotna og þarf kannski að fá skrúfu í löppina. Fæ að vita meira á morgun, þetta er eitthvað með að það sé vöðvi að tosa í beinið og eitthvað með að festa þau saman. Þannig fyrstu vikur þessa árs þarf ég að staulast um á hækjum og má ekki hreyfa mig í 3 daga. Það besta við þetta er að ég bý ekki í hreyfihömlunar friendly húsi. Það er fjallaklifur routinea sem ég þarf að ganga í gegnum ef ég þarf að fara á klósettið eða eitthvað annað niðri. Fann samt snjalla leið áðan að vera með bakpoka ef ég þarf að ná í eitthvað, því ekki get ég haldið á neinu þegar ég er klifra. Þetta mun allavegana styrkja efri líkamann. Mér langar rosalega að sjá sjálfan mig staulast um hérna. Ég er eins og kjáni. Ég er eins og Fatlaða löggan í Family guy.


N/P Emiliana Torrini ? The boy who giggled so sweet

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Maggi minn, þú átta alla mína samúð. Rosalega varstu óheppin kæri frændi. Ég vona nú að þetta gangi nú allt upp hjá þér og brotin grói vel.
Farðu vel með þig og gangi þér vel.
Gleðilegt ár, karlinn minn og takk fyrir gamla árið og öll gömlu góðu árin. Bið að heilsa öllum. Silla frænka.

8:30 e.h.  
Blogger Stúni said...

omg þetta er bilað veit ekki hvort ég hafi postað...

Remake post:
Var að hlusta á death cap áðan og varð hugsað til þín baby...fór að sofa snemma en vaknaði rétt áðan og fór að hlusta á music...svo er það skólinn á morgum ill come pick your crippled ass up

luv ya

4:35 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home