mánudagur, maí 21, 2007

Who knows

Jæja þá er maður víst aftur komin í volæðið hérna á íslandi.
Köben var æðisleg, svo rosalega æðisleg að ég er í alvöru að spá í að flytja þangað í nokkra mánuði,bara nokkra, i would never leave you guys.Þið haldið eflaust að þetta sé einn af þeim hlutum sem ég seigist ætla að gera en geri svo aldrei, en ég hélt það sama með tattooið sem ég var btw að klára. Djöfulli var þetta vont, 3 tímar af sársauka! Já en köben var svo frelsandi. Þetta var svo akkurat ég! Kaffihús á hverju einasta horni, fullt af menningarplebbum í sömu hugleiðingum og ég. Allt lokað á sunnudögum svo maður geti notið þess að vera til.
En það var verslað og verslað, ég uppfyllti draum minn um að eiga svarta ljósakrónu. Keypti samt meira fyrir Eyrúni en sjálfan mig, það er bara miklu skemmtilegra að kaupa á stelpur.
Ég hef aldrei fundist ég jafn lifandi og þarna. Kannski var þetta sólin, kannski var þetta eitthvað annað, kannski var þetta bara tilbreytingin, hver veit. Kannski er þetta bara þreytan í mér núna, að endurlifa minningar sem verða alltaf betri í huga mér.


N/P: Placebo - Placebo

mánudagur, maí 14, 2007

Já svona er lífið


Verkamannavinnan er víst ágætis sælulíf, eða allavegana þessa dagana. Það er spurning hvernig þetta sé þegar fjörið byrjar af alvöru. It's all about the money. Maggi er ekki við núna, hann er í vinnuni.
Skrýtið að síðustu daga hefur mig bara dreymt börn, ég held að þetta sé karma, eftir að ég var að fíflast í mömmu um það að hún sé að verða amma. (Sem hún er ekki að verða) Ég þarf að fara kíkja á það hvað það þýðir að dreyma börn?
Ú wmg tónleikar á mið. Lindaskóli, gamli skóli strákanna :D og köben á föstudaginn.
Sumarið er svo sannarlega komið

N/P: Fréttirnar

fimmtudagur, maí 10, 2007

The Raven by *x-horizon

I believe i can see the future, because i repeat the same routine

N/P: Neurosis - Suspended in light

miðvikudagur, maí 09, 2007

.


Clouds connected by me

Dagarnir líða áfram og áður en ég veit af er komið sumar. Þetta er ein önnur kjánalega tilraunin til að halda einhverri blogg starfsemi í gangi. Hafið þið aldrei lent í því að vilja blogga en svo þegar maður sest fyrir framan tölvunna að þá dettur þetta allt úr manni. Stóru fréttirnar eru víst þær að ég hafi fengið mér tattoo sem samt þið öll vitið og hafið séð.
Arg ég var að lesa fréttablaðið og það á að gera þrjár þáttaraðið af LOST í viðbót hvaða bull er það.
Æi ble