mánudagur, maí 21, 2007

Who knows

Jæja þá er maður víst aftur komin í volæðið hérna á íslandi.
Köben var æðisleg, svo rosalega æðisleg að ég er í alvöru að spá í að flytja þangað í nokkra mánuði,bara nokkra, i would never leave you guys.Þið haldið eflaust að þetta sé einn af þeim hlutum sem ég seigist ætla að gera en geri svo aldrei, en ég hélt það sama með tattooið sem ég var btw að klára. Djöfulli var þetta vont, 3 tímar af sársauka! Já en köben var svo frelsandi. Þetta var svo akkurat ég! Kaffihús á hverju einasta horni, fullt af menningarplebbum í sömu hugleiðingum og ég. Allt lokað á sunnudögum svo maður geti notið þess að vera til.
En það var verslað og verslað, ég uppfyllti draum minn um að eiga svarta ljósakrónu. Keypti samt meira fyrir Eyrúni en sjálfan mig, það er bara miklu skemmtilegra að kaupa á stelpur.
Ég hef aldrei fundist ég jafn lifandi og þarna. Kannski var þetta sólin, kannski var þetta eitthvað annað, kannski var þetta bara tilbreytingin, hver veit. Kannski er þetta bara þreytan í mér núna, að endurlifa minningar sem verða alltaf betri í huga mér.


N/P: Placebo - Placebo

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já, Maggi minn ég veit hvað það var! Det er så dejligt i Danmark! Köben er svo þægileg borg. Afslöppuð og mannlífið afar skemmtilegt. Það er ekkert eins huggó eins og að sitja niður á Nyhavn á góðri ölstofu, drekka danskan öl og horfa á mannlífið í sólskininu. Ekkert stress. Þess vegna skreppur alltaf aftur og aftur og aftur til Köben!

8:42 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

slammin hottie ;)

4:44 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home