Félagsfræði 101
Síðustu daga hef ég haft mikin tíma til að hugsa og er búin að pæla frekar mikið í fólkinu í kringum mig. Iðnarmenn, þetta er stórmerkilegt lið. Ég hef mikið pælt í því að fara í Háskólann og skrifa félagsfræði ritgerð um Iðnarmenn sem menningarkima. Pælið í þessu, þetta eru menn o.k og stundum konur sem hafa sín eigin viðmið og reglur. Fer að jaðra við það að hafa sína eigin tísku líka. Viðmiðin eru meira að seigja það sterk að það gæti orðið fyrir útskúfun ef það fylgir þeim ekki.
Iðnaðarmenn hafa sína eigin matsölustaði og búðir. Hafið þið farið inn á svona stað sem selur heimilismat í hádeiginu. Ég verð að viðurkenna það að það er stórfurðulegt. Þetta er eins og að vera komin inn í aðra vídd. Það er enn fyndnara að tala við þetta lið. Það er eins og þeir hafi misst alla tilfinningu fyrir mannasiðum og því meira sem þú blótar gæjanum við hliðinna á þér, því svalari ertu! Það er aldrei neitt þér að kenna. Það er alltaf gæjanum við hliðinna á þér og ef það er ekki hann þá eru það útlendingarnir. Sem sitja á sérborðum og blóta íslendingunum.
Ég lenti í því í síðustu viku að vera vitni að spjalla á milli nokkra iðnaðarmanna um málefni líðandi stundar, long story short. Ég er sem sagt hampreykjandilistaskólahippi sem eyðir átta árum af lífi mínu til að skvetta málingu á striga og geri mér enga grein fyrir því hver borgar háskólanám hinna vitleysinganna. Já, ímyndið ykkur heim þar sem þessir menn ráða!
Það sem mér fannst samt best við þetta var það að allir þessir menn voru ómenntaðir og lærðu þetta allt í höndunum. Húsin sem við búum í. Eru byggð af þessum mönnum. Hver hefur völdin?
Annars er maður að fara standi í því að flytja. Það er mjög skrýtin tilfinning að vera fullur söknuðar og ánægju á sama tíma. En nýr dagur býður víst alltaf upp á ný tækifæri
N/P: Mono - Yearning