Only the strong survive
One dollar koi_new ver. side by *orudorumagi11
Kringlan, lítil veröld út af fyrir sig. Kauphyggjan í hámarki. Verslaunarmiðstöðvar eru hannaðar til þess eins að láta þig eyða pening. Engir gluggar svo þú vitir ekki hvað tímanum líður, hvað þá klukkur. Ef þú sérð ekki út þá missir þú allt tímaskin. Til að toppa þetta þá er fólk eins og ég sett í búðirnar til að heilla þig upp úr skónum og láta þig eyða fjármunum sem þú átt ekki.Fólkið eru eins og littlir heilalausir maurar vafrandi um í leit að hlutum til að kaupa því umhverfið í kringum þá seigir bara eitt VERSLA! Sem betur fer er ég hinu meigin við borðið!
Ekki það að ég sé eitthvað að kvarta ég er svo að fýla vinnuna í botn. Mér finnst gaman í vinnuni.
En ég er kannski ekki mikið að vinna eins og þessi færsla gefur til kynna. Ég sit og er að skrifa þetta og pæla í fólkinu í kringum mig.
Skildi fólkið í kringlunni gera sér grein fyrir því að það sé verið að stjórna því. Óbeint ef þið skiljið mig. Er frjáls vilji hugtak sem við bjuggum til svo við myndum ekki fríka út yfir því að við stjórnum engu. Eða allavegana ekki í þessu nútíma samfélagi sem við búum í.
N/P: Umhverfishljóð úr kringlunni




