miðvikudagur, september 20, 2006

You're in high school again


Sótthreinsaður matsalur, Sótthreinsaður skóli. Hvert fór allur characterinn sem þessi blessaði skóli hefur upp á að bjóða. Mér langaði í Coke en þar sem það er ekki hægt að kaupa það, þá sit ég með Boozt. Mér lýður eins og tilraunarottu hérna. Ég býð bara eftir skólabúningum, þetta er orðið það slæmt. "You're in high school again" Það eina sem er að bjarga mér hérna er i-podin minn. My only hope. Fólkið hérna er fædd árið 1990. Þetta lið er 4 árum yngra en ég. Ég er orðin gamli gaurinn.
Farið á Deviantart.com og kíkið á Luminatii hún teiknaði myndina að ofan, Massívt hæfileikarík stelpa. Hefði ekkert á móti því að hún mundi teikna WMG plötu-artworkið, spurning samt hvað strákunum finnst um þetta. En cheack it out.
Ég er komin út í það að bulla bara, sem er frábært.
ég hata að blogga en finn samt alltaf þörf til að gera það!

N/P: Thursday - Counting 5-4-3-2-1
N/reading: To kill a Mockingbird

miðvikudagur, september 13, 2006

I don't like the drugs, they like me

Hversu gróft er það orðið þegar maður fer til læknisins og byrjar að lýsa því sem er að þér og læknirinn stoppar þig og seigir "Viltu ekki fá það sama og venjulega" Come on, þetta er ekki það slæmt!!! Ég fýla að fá þetta á aroma en ekki þegar ég er hjá lækninum. I don't like the drugs but the drugs like me. Rosalega er ég komin með mikla leið á skólanum. Rosalega hef ég ekkert að seigja. Rosalega er ég þreyttur. Rosalega hata ég það að eiga ekki pening. Rosalega rosalega ofsalega hrikalega! Blehhh Ég finn þörf til að tjá orð sem hreinlega eru ekki til staðar!


N/P: A perfect circle - When the leaves break
N/R: To kill a mockingbird by Harper Lee

föstudagur, september 08, 2006

At the heart of winter


Veturkonungur er mættur á svæðið! eða réttara sagt Vetur lite, öðru nafni haustið. Leiðinlegasti tími ársins, það er eins og veðrið sé að ákveða sig hvort það eigi að hætta við veturinn og halda áfram með sumarið og vice versa. En þrátt fyrir það er ég með the most awesomest news sem ég hef fengið í langan tíma. Ofurgraðfolarnir í WMG munu spila á Airwaves hátíðinni í ár. Vonandi fáum við bara gott pláss. En ég meina pælið í því ef rétta fólkið sér okkur þá erum við búnir að meika það :D ugh blee ég er farin að þykjast vera læra

n/p: Team sleep - Your skull is read

miðvikudagur, september 06, 2006

I can still do it


Sjáiði gamla kallinn, hann getur þetta enþá þrátt fyrir háan aldur. Versta samt að PAN fáninn sé þarna á bak við en frí auglýsing fyrir þá. Nú á ég loksins stórt rúm og það eina sem mér langar að gera er að vera heima sofandi. Feit orgýa heima hjá mér ;) Hvað er annars að frétta ??
Ég er allavegana bored out of me mind........ æi ég er farin að hanga á b2.is

Peace out
N/P: Portishead - over
N/R: Draumalandið

mánudagur, september 04, 2006

20 years

Það er rosalega skrýtin tilfinning að eldast, nú stend ég á þeim tímamótum að vera tvítugur, eða réttara sagt eftir nokkrar mínotur (Þegar þetta er skrifað) Ég hef verið til í tuttugu ár!! nú læðist alltaf þetta venjulega í mann, er ég þar sem ég vildi að ég væri þegar ég væri orðin tvítugar, feitt já. Ég á bestu vini í öllum heiminum (sem héldu all svaðalegasta afmælispartý sem sögur fara af) ég er að gera allt sem ég vil í lífinu og ég stórlega efast um að það fari eitthvað að breytast á næstunni. Ég er orðin fullorðin einstaklingur, ég má gera allt! Er ég með einhver markmið fyrir framtíðina? Humm......halda mínu striki, ég er frekar sáttur eins og hlutirnir eru. Eina markmiðið sem ég set sjálfum mér er að ég ætla að halda á fyrstu breiðskífu WMG í höndunum áður en árið 2006 er lokið. Jæja nú er stóra stundin runnin upp, ég er löglega orðin tvítugur, og ég er ekki frá því að ég hafi stækkað svolítið síðan áðan. Fyrir akkurat 20 árum, árið 1986 þá var ég að byrja að koma í heiminn, samkvæmt móður minni þá byrjuðu hríðirnar um þetta leyti og ég kom í heimin kl.22:20 árið 1986. Og heimurinn hefur ekki orðið samur síðan.

N/P:Placebo ? 20 years

p.s hvar eru til hammó smsin, Nei djók, ég er svo sáttur eftir afmælis partýið að ég er ævinlega í skuld við ykkur. Ég elska ykkur öll